Lok rannsóknar og birting skýrslu rannsóknarnefndar

Rannsóknarnefnd Alþingis vegna snjóflóðsins í Súðavík 16. janúar 1995 sem skipuð var á grundvelli ályktunar Alþingis 30. apríl 2024 um slíka rannsókn hefur lokið rannsókn sinni.

Rannsóknarnefndin afhendir forseta Alþingis skýrslu um rannsóknina mánudaginn 15. desember nk. kl. 13.00. Eftir það er fulltrúum fjölmiðla boðið til kynningar rannsóknarnefndar á rannsókninni og helstu atriðum í skýrslunni kl. 15.00 sama dag. Kynningin fer fram í húsnæði Alþingis, nánar tiltekið ráðstefnusalnum Kvos á 1. hæð Smiðju, Tjarnargötu 9.

Samhliða kynningu á skýrslunni fyrir fulltrúum fjölmiðla þennan dag verður skýrslan birt með gögnum sem fylgja henni. Opnað verður fyrir aðgang að skýrslunni og fylgigögnum hennar á vef rannsóknarnefnda Alþingis, þ.e. á heimasíðu rannsóknarnefndarinnar https://rna.althingi.is/sudavik/. Vefútgáfa skýrslunnar er aðalútgáfa hennar.