Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um starfsemi Íbúðalánasjóðs afhent 2. júlí 2013 kl. 13 í Alþingishúsinu
Fréttatilkynning 1. júlí 2013
Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um starfsemi Íbúðalánasjóðs afhent 2. júlí kl. 13 í Alþingishúsinu
Fréttamannafundur 2. júlí kl. 14 í Oddfellowhúsinu
Afhending skýrslunnar
Rannsóknarnefnd Alþingis um Íbúðalánasjóð o.fl., sem var skipuð í september 2011 á grundvelli þingsályktunar frá 17. desember 2010, afhendir forseta Alþingis skýrslu sína þriðjudaginn 2. júlí kl. 13 í efrideildarsalnum í Alþingishúsinu. Fulltrúum fjölmiðla er boðið að vera viðstaddir.Opnað verður fyrir aðgang að skýrslunni á vef Alþingis (http://rna.althingi.is/) og verður vefútgáfan aðgengileg 2. júlí kl. 14. Vefútgáfa skýrslunnar er aðalútgáfa hennar.
Fréttamannafundur rannsóknarnefndar Alþingis
Rannsóknarnefnd Alþingis um Íbúðalánasjóð o.fl. heldur fréttamannafund þriðjudaginn 2. júlí kl. 14 í Oddfellowhúsinu, Vonarstræti 10.
Kynntar verða niðurstöður sjálfstæðrar, óháðrar rannsóknar nefndarinnar varðandi Íbúðalánasjóð og áhrif sem ákvarðanir um rekstur hans hafa haft eftir því sem þingsályktunin mælti fyrir um.
Almenn umræða á Alþingi um skýrsluna hefst svo á þingfundi næsta dag, miðvikudaginn 3. júlí.